Íbúar á Hlíð komnir í sóttkví

Hlíð á Akureyri.
Hlíð á Akureyri. Ljósmynd/Akureyrarbær

Íbúar á hjúkrunarheimili Heilsuverndar á Hlíð á Akureyri eru nú komnir í sóttkví eða smitgát ásamt nokkrum starfsmönnum vegna smits sem greindist hjá einum starfsmanni seinnipartinn í gær.

Um er að ræða Víði- og Furuhlíð og þar verður lokað fyrir allar heimsóknir til og með 4. október. Þá lýkur sóttkví að því gefnu að enginn greinist jákvæður í sýnatöku þann dag, að því er segir á vef Hlíðar.

Viðbragðsáætlun var virkjuð í gærkvöldi og fyrirmælum rakningarteymis fylgt í hvívetna. Þetta er í fyrsta sinn síðan faraldurinn hófst sem smit hefur áhrif á starfsemi hjúkrunarheimila Heilsuverndar og hingað til hefur enginn íbúi smitast hvorki á Hlíð né Lögmannshlíð. 

Hjúkrunarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð.
Hjúkrunarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð. mbl.is/Margrét Þóra

Búið er að upplýsa alla íbúa og verið er að hafa samband við aðstandendur þeirra.

Aðgerðir á Víði- og Furuhlíð hafa ekki áhrif á starfsemi annarra eininga Heilsuverndar hjúkrunarheimila.

Þar eru heimsóknir leyfðar en vegna fjölgunar smita undanfarna daga á svæðinu þá er beint þeim tilmælum til aðstandenda að þeir takmarki heimsóknir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert