Óvissustig á Tröllaskaga vegna úrkomu

Úr Eyjafjarðarsveit.
Úr Eyjafjarðarsveit. mbl.is/Margrét Þóra

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra hefur lýst yfir óvissustigi á Tröllaskaga vegna úrkomu á Norðurlandi eystra. 

Þá er einnig lýst yfir hættustigi í Kinn og Útkinn vegna úrkomu og skriðuhættu.  Tekin hefur verið ákvörðun um að rýma eftirtalda bæi í Útkinn: Björg, Ófeigsstaði, Rangá, Engihlíð og Þóroddsstaði.

Veðurstofa Íslands hefur sett út gula viðvörun vegna úrkomu á Norðurlandi eystra og gildir hún til hádegis í dag, að því er kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra sem var send út á öðrum tímanum í nótt.

Mikil úrkoma var á Norðurlandi í gær og verður áfram í dag. 

Veginum í Útkinn frá gatnamótum við Norðausturveg hefur verið lokað vegna aurskriðna sem þar hafa fallið. 

Borist hafa upplýsingar um grjóthrun á Siglufjarðarvegi í Almenningum vestan Siglufjarðar og eru vegfarendur beðnir um að hafa varann á séu þeir á leið þar um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert