„Rosalega mikil rigning og í langan tíma“

Frá Útkinn.
Frá Útkinn. Ljósmynd/Svartaborg

„Við vorum sótt í nótt af björgunarsveitinni og erum öll á Húsavík núna og erum bara að bíða eftir fréttum, segir Róshildur Jónsdóttir, íbúi á bænum Rangá í Útkinn, en bærinn var rýmdur í nótt. 

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýsti í nótt yfir hættustigi í Kinn og Útkinn vegna úrkomu og skriðuhættu og var tek­in ákvörðun um að rýma eftirtalda bæi í Útkinn: Rangá, Ófeigs­staði, Björg, Engi­hlíð og Þóroddsstaði. 

Einnig var lýst yfir óvissustigi á Tröllaskaga vegna úrkomu. 

Bíða átekta

Róshildur segist ekki hafa áður séð jafnmikla rigningu. „Þetta var rosalega mikil rigning og í langan tíma,“ segir hún og bætir við að lækirnir hafi verið orðnir ansi miklir. 

Róshildur segir að ekki sé enn vitað hversu lengi þau munu þurfa að dvelja á Húsavík. „Það er fundur núna hjá almannavörnum og við erum bara að bíða.“ 

Hjónin á Rangá eru með gistingu fyrir ferðamenn og voru það því fimmtán manns sem voru sótt á bæinn Rangá í nótt og flutt á Hótel Húsavík. Einhverjir íbúar í Útkinn voru þó fluttir til Akureyrar.

Íbúar Rangár voru keyrðir til Húsavíkur enda Rangá ekki orðin innlyksa vegna skriðu.

Þyrlan Landhelgisgæslunnar sótti fjóra

Að sögn Ásgeir Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var þyrla Gæslunnar kölluð út í nótt og sótti hún fjóra einstaklinga í Útkinn. Þyrlan mun að ósk Aalmannavarna fara aftur í loftið upp úr hádegi og taka stöðuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert