Leyft að rífa rauða braggann

Bragginn hefur látið talsvert á sjá í áranna rás.
Bragginn hefur látið talsvert á sjá í áranna rás. mbl.is/Sisi

Bröggum frá stríðsárunum hefur farið fækkandi í Reykjavík og nú stendur til að rífa einn slíkan, sem staðið hefur við Sævarhöfða í Reykjavík. Þetta er áberandi rauður braggi sem blasað hefur við öllum sem leið hafa átt inn eða út úr Bryggjuhverfinu.

Breska setuliðið reisti þennan bragga á sínum tíma og Björgun hf. notaði hann sem vörugeymslu á meðan fyrirtækið var með starfsemi á svæðinu. Faxaflóahafnir keyptu braggann af Björgun árið 2016 en framseldu hann til Reykjavíkurborgar árið 2018.

Á fundi byggingarfulltrúa 21. september sl. var eignasjóði Reykjavíkurborgar veitt leyfi til að rífa braggann á lóð númer 33 við Sævarhöfða með tilvísan til laga um mannvirki frá 2010. Stærð braggans er 384 fermetrar, 1.884 rúmmetrar. Bragginn verður því ekki endurbyggður á sama stað eins og bragginn í Nauthólsvík enda stendur hann á svæði þar sem nýtt hverfi, Bryggjuhverfi vestur, er byrjað að rísa.

Fram kemur í húsakönnun Borgarsögusafns frá 2021 að bragginn í Sævarhöfða hafi verið mældur 1993 og skráður á fasteignaskrá árið eftir. Bragginn sé líklega aðfluttur en óljóst sé hvaðan hann kemur. Hann sjáist á loftmyndum frá 1975. Þetta sé dæmigerður braggi af Nissen-gerð, stálgrindarhús á steyptum grunni með bárujárnsklæðningu. Hann sé hluti af athafnasvæði Björgunar, tengist sögu iðnaðar á Ártúnshöfða en einnig sögu hernámsára. Hann hafi sem slíkur miðlungs varðveislugildi, en sé litið til byggingarlistar sé varðveislugildið hátt enda virðist hann að mestu óbreyttur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert