Engar tilkynningar borist um aurskriður

Enn hafa engar tilkynningar borist um aurskriður á Seyðisfirði.
Enn hafa engar tilkynningar borist um aurskriður á Seyðisfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Engar tilkynningar hafa borist um aurskriður á Seyðisfirði en vel er fylgst með hreyf­ing­um á fleka sem ligg­ur milli skriðusárs­ins frá 2020 og Búðarár. Þetta segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, í samtali við mbl.is.

Hættustig almannavarna er í gildi vegna hættu á skriðuföllum á Seyðisfirði og í Kinn og Útkinn í Þingeyjarsveit. Í ljósi þess hefur fjöldi húsa verið rýmd á þessum svæðum síðastliðna daga.

Frá því að rýming er ákveðin hefur ástandið haldist óbreytt hvað það varðar en það er fylgst mjög vel með öllum mælum áfram.“

Rík­is­lög­reglu­stjóri í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Aust­ur­landi ákvað að lýsa yfir hættu­stigi al­manna­varna á Seyðis­firði vegna hættu á skriðuföll­um í gær og verður rýmingin í gildi fram yfir helgi, í það minnsta. Ekki hefur þurft að rýma fleiri hús síðan þá, segir Kristján inntur eftir því.

Hann segir að fréttatilkynning um stöðu mála verði send út fyrir hádegi í dag eftir fund með Veðurstofu og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert