Níu liggja inni með Covid-19 – einn á gjörgæslu

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. Ljósmynd/mbl.is

Níu sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19, þar af eitt barn. Á bráðalegudeildum spítalans eru átta. Á gjörgæslu er einn sjúklingur, ekki í öndunarvél. 

Meðalaldur þeirra sem liggja inni er 51 ár.

368 sjúklingar, þar af 145 börn, eru núna á Covid-göngudeild spítalans, að sögn Landspítalans.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní síðastliðinn, hafa 119 verið lagðir inn vegna Covid-19 á spítalann. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert