Rýming í gildi fram yfir helgi

Horft út um gluggann á Síldarvinnslunni á tindinn sem gnæfir …
Horft út um gluggann á Síldarvinnslunni á tindinn sem gnæfir yfir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enn mælist hreyfing í skriðusárinu sunnan megin við Búðará á Seyðisfirði, að því er greint frá í tilkynningu frá Almannavörnum. Unnið er að greiningu gagna um nákvæmar færslur í kjölfar rigninga í gær og ætti hún að liggja fyrir síðar í dag.

Engar aðrar hreyfingar hafa mælst í hlíðum ofan Seyðisfjarðar.

Um klukkan níu í gærkvöldi stytti upp eftir 40 mm úrkomu líkt og spár sögðu til um. Ekki er gert ráð fyrir rigningu í dag en lítilsháttar úrkomu á morgun, laugardag. Vel er fylgst með öllum mælum í hlíðinni ofan Seyðisfjarðar.

Herðubreið verður opin klukkustund lengur í dag en aðra daga, eða frá klukkan 14 til 17.

Boða til fundar með íbúum á svæðinu

Fulltrúar Veðurstofu munu mæta til framsögu á Teams-fundi í Herðubreið klukkan fjögur í dag þar sem þeir munu svara spurningum íbúa og eru íbúar í húsum á rýmingarsvæðum sérstaklegar hvattir til þess að mæta.

Vegna úrkomu í gær og óvissu sem henni fylgir, verður ekki í boði fyrir íbúa á rýmingarsvæðum að fara inn í hús sín fram yfir helgi. Þá er öll óviðkomandi umferð um skriðusvæðið óheimil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert