Jón Baldvin aftur fyrir héraðsdóm á morgun

Jón Baldvin ásamt Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni lögmanni sínum.
Jón Baldvin ásamt Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni lögmanni sínum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aðalmeðferð í máli héraðssak­sókn­ara gegn Jóni Bald­vini Hanni­bals­syni, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráðherra, fer fram á morgun, 11. októ­ber í Héraðsdómi Reykja­vík­ur. Þetta staðfest­ir Vil­hjálm­ur H. Vil­hjálms­son, verj­andi Jóns, í sam­tali við mbl.is.

Málið hef­ur verið sent fram og til baka úr héraði í Lands­rétt og er þetta í þriðja skiptið sem héraðsdóm­ur tek­ur það fyr­ir. 

Jón er ákærður fyr­ir að hafa brotið kyn­ferðis­lega á Car­men Jó­hanns­dótt­ur þegar hún var gest­kom­andi á heim­ili Jóns og eig­in­konu hans í bæn­um Salobreña í Andal­ús­íu á Spáni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert