Ferðaþjónustan álitin auðlind

Ferðaþjónustan í Kosta Ríka er vel skipulögð og hæfilega miðstýrð, án þess þó að einkaaðilum sé settur stóllinn fyrir dyrnar. Gustavo Seguro Sancho ferðamálaráðherra landsins segir að með hæfilegri miðstýringu og yfirvegaðri stjórnsýslu megi nýta ferðaþjónustu sem auðlind fyrir alla íbúa landsins, óháð því hvar þeir búa.

Árið 1948 tók Kosta Ríka þá afdrifaríku ákvörðun að losa sig við herafla sinn og nýta útgjöldin í að byggja upp innviði. Í stað herafla kom sterkt velferðarkerfi og þétt net þjóðgarða, sem þekja nú um 26% flatarmáls landsins. Seguro Sancho segir að með þessu hafi grunnurinn að velgengni ferðaþjónustu þar í landi verið lagður – velgengni sem byggð er á sterkum innviðum, háu menntunarstigi og miklum almannagæðum í formi þjóðgarða og ríkrar tilhneigingar íbúa til umhverfisverndunar.

Gustavo Seguro Sancho, ferðamálaráðherra Kosta Ríka.
Gustavo Seguro Sancho, ferðamálaráðherra Kosta Ríka. Ljósmynd/Aðsend

Hóflegur vöxtur

Seguro Sancho segir að ferðaþjónusta í Kosta Ríka hafi ætíð verið talin til auðlinda og tækis til þess að auka félagslegan hreyfanleika og bæta lífskjör í landinu. Hann segir að komur ferðamanna til landsins hafi aukist um 5% að jafnaði á ári frá árinu 1991 til ársins 2019. Árið 1998 tók Kosta Ríka í fyrsta sinn á móti milljón ferðamönnum á ársgrundvelli og fyrir faraldurinn fór talan hæst í 3,1 milljón. Í Kosta Ríka búa rösklega fimm milljónir manna og eru ferðamenn þar því töluvert færri en íbúar, ólíkt því sem gerist hér á landi, þar sem komufarþegar á ári hverju eru margfalt fleiri en íbúar.

Seguro Sancho segir enda að íbúum Kosta Ríka hafi verið mikið hjartans mál að ganga ekki fram af náttúruauðlindum, náttúruperlum og vinsælum ferðamannastöðum, sem er einmitt það sem landið státar helst af. Raunar eru sjálfbærni og umhverfisvitund lykilorð í stefnu stjórnvalda þar í landi á sviði ferðamála.

Hann segir enn fremur að mikilvægt sé að ganga ekki fram af náttúrunni, í landi þar sem ferðamenn koma helst til þess að heimskja náttúruperlur. Þannig segir hann að stjórnvöld hefðu aðallega beitt sér í því að koma upp regluverki þar um, til þess að gæta þess að ferðamannaiðnaður Kosta Ríka yxi jafnt og þétt.

Samstarf ríkis og einkageira

„Okkur var það alveg ljóst í upphafi að við yrðum að setja strangt regluverk til þess að vöxturinn yrði hóflegur, af því þegar ferðaþjónusta miðast út frá náttúrufegurð og náttúruperlum, þá er ekki boðlegt að hafa mikinn troðning. Ef ekki, þá eyðileggjast náttúruperlurnar,“ segir Seguro Sancho við Mogunblaðið og bætir við: „Auðvitað hefur þetta þó verið samstarf [hins opinbera og einkaaðila] sem ráðið hefur för síðustu þrjá áratugi eða svo. Við erum að sjálfsgöðu jákvæð í garð uppbyggingar og erlendrar fjárfestingar en reglurnar eru alveg skýrar.“

Ráðherrann útskýrir enn fremur að regluverkið miðist aðallega út frá skýru deiliskipulagi og regluverki um nýbyggingar, græn svæði njóta verndar og ekki má ganga of nærri náttúrunni og lífríkinu.

„Þannig vinna allir. Lífríkið vinnur, sem þýðir að jörðin öll vinnur, íbúar landsins vinna og ferðamennirnir vinna.“

Höfða til síns hóps

Seguro Sancho segir einnig að markaðssetning á sviði ferðaþjónustu sé mjög hnitmiðuð. Kosta Ríka vill helst fá til sín vel menntaða og vel stæða ferðamenn. Meðalfjöldi gistinátta á hvern komufarþega í Kosta Ríka er um 12 en meðalfjöldi gistnátta í samkeppnisþjóðum er um fimm nætur.

„Við viljum ekki, eins og aðrir, fá til okkar ógrynni ferðamanna sem koma í stuttan tíma bara til þess að sötra á piña colada,“ segir ráðherrann og hlær.

Þannig reyna stjórnvöld í Kosta Ríka að fá til sín ferðamenn sem dvelja lengur, eyða meiru og njóta náttúrunnar sem landið hefur upp á að bjóða. Eins og Seguro Sancho útskýrir leitast stjórnvöld ekki við að laga landið að ákveðnum markaði ferðamanna, heldur stíla þau inn á ferðamenn, sem þau telja að passi við Kosta Ríka. Hann segir að Kosta Ríka líti á sjálft sig sem gæðavöru í ferðamannaiðnaðinum og gæðavöru auglýsi maður ekki til hvers sem er.

Ísland finni sinn markað

Spurður um hvaða ráð hann myndi gefa Íslandi, sem enn er á ákveðnu þroskastigi hvað ferðaþjónustu varðar, bendir Seguro Sancho á að það verði að vera fyrir hendi framtíðarhugsun. Ef aðeins er verið að hugsa um vöxt brenni greinin út.

„Auðvitað er krafa um vöxt og auðvitað verður einhver vöxtur að verða, en það verður að liggja fyrir þjóðarsátt um hversu langt eigi að ganga í þeim efnum,“ segir Seguro Sancho og bætir við: „Það eru til alls konar módel, við erum með okkar módel sem snýst um að ferðaþjónustan sé tól til þess að vernda náttúruna og til þess að bæta lífskjör. Það leiðir að því að bæði náttúran og velferð íbúanna hérna biðu þess ekki bætur ef við hleyptum inn gríðarlegum fjölda ferðamanna án þess að spá neitt frekar í það.“

Opnuðu fyrr og allt gekk vel

Kosta Ríka fann skellinn sem allar þjóðir, sem reiða sig á komu ferðamanna, fundu þegar heimsfaraldurinn skall á. Stuttu eftir að fyrsta tilfellið greindist í Kosta Ríka hinn 18. mars í fyrra var landamærum landsins lokað. Í ágúst var ferðamönnum hleypt aftur inn í landið og í nóvember þurftu ferðamenn ekki einu sinni að framvísa neikvæðu PCR-prófi við komuna til landsins. Seguro Sancho segir að prófin hafi hægt á uppbyggingu í kjölfar faraldursins og var ávinningur af notkun þeirra minni en ávinningur af komu ferðamanna. Krafa um grímunotkun, handþvott og fjarlægðarmörk hafi valdið því að smittíðni meðal farþega á leið frá Kosta Ríka var undir 0,5%. Ráðherrann þakkar samstilltu átaki íbúa landsins og ferðamanna um að gæta vel að sóttvörnum. Alls hefur 21 flugfélag af 27 sem vöndu komur sínar til Kosta Ríka hafið áætlunarflug á ný. Seguro Sancho segist gera ráð fyrir að ferðaþjónustan þar í landi verði komin á fyrra skrið strax árið 2023 og vel á veg strax á næsta ári.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert