Íbúar á Víðihlíð aftur í sóttkví

Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri.
Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Ljósmynd/Akureyrarbær

Íbúar á Víðihlíð, sem er hluti af hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri, eru komnir í sóttkví ásamt þremur starfsmönnum vegna smits sem greindist hjá starfsmanni síðdegis í gær.

Starfsmaðurinn hefur ekki verið í vinnu undanfarna daga.

Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem íbúar Víðihlíðar þurfa að fara í sóttkví vegna smits starfsmanns. 

Lokað er fyrir allar heimsóknir í Víðihlíð meðan á sóttkví stendur eða til og með 17. október að því gefnu að enginn greinist jákvæður í sýnatöku þann dag.  Búið er að upplýsa alla íbúa og verið er að hafa samband við aðstandendur þeirra, að því er segir í tilkynningu.  

Viðbragðsáætlun var virkjuð í gærkvöldi og fyrirmælum rakningarteymis fylgt í hvívetna.

Enn hefur enginn íbúa smitast, hvorki á Hlíð né Lögmannshlíð.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert