Loka leiðinni að gosstöðvunum

Gönguleiðinni að eldgosinu verður lokað eftir hádegi.
Gönguleiðinni að eldgosinu verður lokað eftir hádegi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka gönguleiðinni að gosstöðvunum eftir klukkan eitt í dag vegna veðurs. Spáð er vaxandi austanátt og ofankomu eftir hádegi, eða um 10-18 m/s. Bæta á í vind um kvöldið, en lægir svo aftur þegar líður á nóttina.

Lítið hefur verið að frétta af gosinu undanfarinn mánuð, en engin kvika hefur komið upp frá og með kvöldinu 18. september.

Eins og áður verður hægt að fylgjast með aðstæðum á gosstöðvunum í vefmyndavél mbl.is hér.





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert