Réðust að 16 ára drengjum fyrir framan Hagkaup

Slagsmálin urðu á planinu fyrir framan Hagkaup í Garðabæ.
Slagsmálin urðu á planinu fyrir framan Hagkaup í Garðabæ. mbl.is/Hjörtur

Lögreglu barst tilkynning frá þremur 16 ára drengjum um þrjúleytið í nótt vegna slagsmála við fjóra drengi á tvítugsaldri á planinu fyrir framan Hagkaup í Garðabæ, en greint var frá slagsmálunum fyrr í morgun.

Í samtali við mbl.is segir lögregla að slagsmálin hafi átt sér aðdraganda, en fyrr um kvöldið hafi hópurinn einnig átt í slagsmálum sem leiddi til þess að einn fór á slysadeild.

Lögreglan hefur ákveðnar vísbendingar um hverjir eldri drengirnir séu en málið er nú til rannsóknar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert