Vopnað rán í apóteki í Vallakór

Maðurinn flúði af vettvangi áður en lögreglu bar að garði. …
Maðurinn flúði af vettvangi áður en lögreglu bar að garði. Hans er nú leitað. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var vopnað rán í apóteki í Vallakór í Kópavogi um hálfeitt í dag. Maður vopnaður dúkahníf ógnaði þá starfsfólki apóteksins og hafði á brott með sér lyf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Fram kemur í tilkynningu að lögregla hafi um leið haldið á vettvang en maðurinn var flúinn af vettvangi þegar lögregla kom á svæðið.

Maðurinn er enn ófundinn og er hans leitað. Hann var klæddur í svarta 66°Norður-úlpu, með svarta húfu og buff fyrir andlitinu.

Engan sakaði í apótekinu en starfsfólkinu var þó verulega brugðið.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert