Hættulegt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind

Búist er við því að vindhviður geti náð allt að …
Búist er við því að vindhviður geti náð allt að 45 metrum á sekúndu. Ljósmynd/ Blika

Í Mýrdal, undir Eyjafjöllum og í Öræfum nærri Svínafelli má búast við austan stormi og öflugum vindhviðum frá klukkan ellefu fyrir hádegi til klukkan sex seinnipart dags á morgun, fólk er varað við akstri frá Seljalandsfossi að Vík á þessu tímabili.  

Um er að ræða austan storm með suðurströndinni og búist er við því að vindhviður geti náð allt að 45 metrum á sekúndu en almennt er búist við norðaustanvindi að styrk 18 til 25 metra á sekúndu. 

Á Safetravel, vefsíðu haldið úti af almannavörnum, er í gildi aðvörun vegna veðursins.  Ferðamönnum er ráðlagt að laga ferðaáætlanir sínar að þessum aðstæðum, en vindurinn getur reynst hættulegur ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert