Vilja festa átakið allir vinna varanlega í sessi

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar.
Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar. Ljósmynd/Aðsend

Samiðn, samband iðnfélaga, hvetur stjórnvöld að tryggja að átakið allir vinna verði fest varanlega í sessi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samiðn.

Meðal þeirra ráðstafana sem stjórnvöld gripu til á árinu 2020 var átakið allir vinna sem fólst í því að virðisaukaskattur vegna framkvæmda og endurbóta var endurgreiddur að öllu leyti.

Í fréttatilkynningu Samiðnar segir að átakið stuðli að mörgum virðisaukandi verkefnum til samfélagsins og segja það skipta miklu máli út frá neytendasjónarmiðum. Því hvetja þau stjórnvöld að festa átakið í sessi sem að öllu óbreyttu rennur út um næstkomandi áramót.

Hvetja stjórnvöld til að viðhalda lögverndun iðngreina

Í ályktun miðstjórnarfundar Samiðnar kemur fram að það sem skipti almenning mestu máli þegar kemur að störfum iðnaðarmanna séu gæði vinnu þeirra en þetta kom fram í könnun sem Ráðhúsið vann fyrir samtökin í ágúst.

„Eitt það mikilvægasta til að tryggja góð vinnubrögð í iðngreinum er að viðhalda ríkum kröfum sem gerðar eru til þeirra sem hyggjast starfa þar. Að neytendur geti fullvissað sig um að fá faglega þjónustu frá fagmanni sem þekki til verka hér á landi. Stjórnvöld verða því að tryggja að lögvernduð iðngreina sé tryggð og að ríkur hvati sé til staðar að leita sér iðnmenntunar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert