Kynnir hugmyndir um daggæslu á vinnustöðum

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, setur af stað herferðina Geyma eða …
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, setur af stað herferðina Geyma eða gleyma.

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kynnir í dag hugmyndir um daggæslu á stærri vinnustöðum. Hún segir borgina vel geta veitt stærri vinnustöðum stuðning og sveigjanleika til að opna daggæslu fyrir börn starfsmanna.

Þannig megi fjölga valkostum og styðja betur við foreldra sem eiga í erfiðleikum með að komast aftur á vinnumarkað í kjölfar barneigna, vegna skorts á leikskólaplássum og fækkunar í stétt dagforeldra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Hildur segir að atvinnurekendur getið jafnframt notið góðs af daggæslu á vinnustöðum, enda verði auðveldara að endurheimta starfsfólk að loknu fæðingarorlofi, og foreldrar þurfa síður að fara snemma úr vinnu til að sækja börn um langan veg í lok vinnudags.

Hugmyndin er sú fyrsta í herferð sem Hildur setur af stað í dag undir yfirskriftinni Geyma eða gleyma. Þar ætlar hún að kynna þrjátíu fjölbreyttar hugmyndir að betri, fjölskylduvænni og skemmtilegri höfuðborg. Hugmyndirnar munu birtast á komandi dögum og borgarbúum gefast kostur á að segja skoðun sína, hvort hugmyndunum skuli gleyma eða þær geyma.

Jafnframt leggur Hildur í dóm borgarbúa hvort reisa eigi styttu af Hallveigu Fróðadóttur, fyrstu landnámskonunni á Arnarhóli og hvort lækka eigi fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði í Reykjavík. Atkvæðagreiðslan fer fram á nýrri vefsíðu Hildar: www.hildurbjornsdottir.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert