Ellefu af þrettán sjúklingum bólusettir

Frá gjörgæsludeild Landspítala. Enginn er nú í öndunarvél.
Frá gjörgæsludeild Landspítala. Enginn er nú í öndunarvél. Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Alls liggja nú 13 sjúklingar á Landspítala vegna kórónuveirunnar og eru þeir allir fullorðnir. Tveir þeirra eru óbólusettir. Einn er á gjörgæslu en ekki í öndunarvél. Meðalaldur þeirra sem liggja á Landspítala er 52 ár.

Þetta kemur í nýuppfærðum tölum á vef Landspítala.

Þar segir einnig að 798 sjúklingar séu nú skráðir á göngudeild spítalans, eða allir þeir sem eru með virkt Covid-smit á landsvísu. Í gær voru nýskráðir á göngudeild 58 fullorðnir og 22 eða 80 samtals.

Frá upphafi fjórðu bylgju veirunnar, 30. júní 2021, hafa 138 þurft að leggjast inn á Landspítala vegna Covid-19.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert