FSu lokaður í dag vegna smita

Fjölbrautaskóli Suðurlands.
Fjölbrautaskóli Suðurlands. mbl.is//Hari

Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi verður lokaður í dag vegna kórónuveirusmita í tengslum við starf skólans og smitrakningar. 

Þetta segir á vef skólans.

Þar segir einnig að nemendur þurfi ekki að hafa áhyggjur af röskun skólastarfs og að frekari upplýsingar verði sendar út á morgun. 

Í frétt Vísis er haft eftir Olgu Lísu Garðarsdóttur, skólameistara í FSu, að nokkrir kennarar og starfsmenn hafi greinst með veiruna og aðrir séu með flensu og geti þar með ekki kennt í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert