Kortlagning á óleyfisbúsetu hefst í dag

Þrír létust eft­ir að eld­ur kom upp í fjöl­býl­is­húsi á …
Þrír létust eft­ir að eld­ur kom upp í fjöl­býl­is­húsi á horni Bræðra­borg­ar­stígs og Vest­ur­götu í Reykja­vík 25. júní sl. Eggert Jóhannesson

Kortlagning á svokallaðri óleyfisbúsetu, það er fjölda einstaklinga sem búa í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, hefst í dag. Kortlagningin er fyrsti áfangi samstarfsverkefnisins Örugg búseta fyrir alla.

Áætlað að kortlagningin taki þrjá mánuði

Í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg í fyrra þar sem þrjú létust var Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) að beiðni félags- og barnamálaráðherra falið að vinna að tillögum til úrbóta á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu. Í því skyni stofnaði HMS samráðsvettvang sem lagði fram þrettán úrbótatillögur, þar á meðal að kortleggja hversu margir einstaklingar búa í atvinnuhúsnæði, ásamt því að safna upplýsingum um ástand brunavarna og félagslegar aðstæður íbúa sem nú er verið að setja í framkvæmd. Ákveðið var að hefja þessa vinnu á höfuðborgarsvæðinu og þróa aðferðafræði sem nýtast mun um land allt.

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var falið að leiða verkefnið í nánu samstarfi við HMS, Alþýðusamband Íslands og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.

Áætlað er að kortlagningin muni taka um þrjá mánuði. Í því felst að hópur eftirlitsfulltrúa heimsækir atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og ræðir við einstaklinga sem þar eru búsettir um ástand brunavarna og félagslegar aðstæður þeirra. Upplýsingar verða ópersónugreinanlegar.

Koma þurfi í veg fyrir hörmulega atburði

Í kjölfar kortlagningarinnar verði svo skoðað hvaða úrbætur þarf að ráðast í til að skapa öruggari húsnæðisaðstæður fyrir íbúa, að sögn Jóns Viðars Matthíassonar, slökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

„Kortlagningin skapar grundvöll fyrir stjórnvöld til að ráðast í nauðsynlegar úrbætur og koma í veg fyrir hörmulega atburði eins og áttu sér stað á Bræðraborgarstíg,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.“

Á vefsíðunni homesafety.is má nálgast upplýsingar um verkefnið á sex tungumálum.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og stjórnarformaður SHS, Halla Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri ASÍ og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir aðstoðarforstjóri HMS munu kynna samstarfsverkefnið á blaðamannafundi sem verður haldinn í bílasal Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð 14 í dag kl. 11:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert