Maður með Covid-19 lést á Landspítala

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi.

Maður smitaður af Covid-19 lést á Landspítalanum í dag. Samkvæmt heimildum mbl.is lá maðurinn inni á Landspítala þegar smitið greindist og ekki hefur enn fengist staðfest hvort um sé að ræða andlát af völdum sjúkdómsins.

Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, staðfesti andlátið í samtali við Vísi og sagði að málið hafi verið tilkynnt sóttvarnalækni.

Hvorki náðist í Má Kristjánsson né sóttvarnalækni við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert