Eitthvað líf enn eftir í gígnum

Fólk á ferli í Geldingadölum.
Fólk á ferli í Geldingadölum. mbl.is/Sigurður Bogi

Enn streyma gosgufur jafnt og þétt upp úr gíg 5 í Geldingadölum og virðist því eitthvað líf vera eftir í honum, að því er segir á facebooksíðu eldfjallafræði- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands.

Myndir sem fylgja færslunni og myndskeið sem var tekið á laugardaginn benda til þess að ný kvika sé að komast nægilega grunnt upp í gosrásina til þess að afgasast.

Almannavarnarstig í Geldingadölum var lækkað úr hættustigi niður í óvissustig í síðasta mánuði vegna þess að virknin í gígnum hafði þá legið niðri í fjórar vikur.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert