Ákæruvaldið vill þyngja dóm yfir Hafþóri

Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Odd

Hæstiréttur tók í dag til meðferðar peningaþvættismál Hafþórs Loga Hlynssonar, sem sakaður er að hafa hagnast á margvíslegum brotum allt til ársins 2017. 

Talið var hafið yfir skyn­sam­leg­an vafa í dómi Landsréttar að hann hefði á um­rædd­um tíma aflað sér ávinn­ings að fjár­hæð allt að 8.121.760 krón­um með refsi­verðum brot­um. Sá refsi­dóm­ur var sá tólfti sem Hafþór hafði hlotið síðan í des­em­ber árið 2003, en hann er fædd­ur árið 1987.

Hæstiréttur samþykkti áfrýjunarbeiðni Hafþórs í byrjun júní, en hann var sakfelldur í Landsrétti og dæmdur til 20 mánaða fangelsisvistar. Hafþór er einna þekktastur fyrir aðild sína að stórfelldum þjófnaði á tölvubúnaði, sem notaður var til að grafa eftir rafmyntinni bitcoin.

Hafþór var hand­tek­inn í maí árið 2017 og í fram­hald­inu gerð leit á heim­ili hans. Fann lög­regl­an þá 1,8 millj­ón­ir und­ir rúm­dýnu, en Hafþór sagðist hafa tekið þá upp­hæð úr banka því hann skuldaði bank­an­um. Þá fund­ust einnig tals­verðir fjár­mun­ir í leyni­hólfi bak við eld­hús­inn­rétt­ingu á heim­ili hans sem og á hon­um sjálf­um.

Skoða að refsa fyrir ávinning af brotum sem ekki er vitað hver voru

Dómarar í Hæstarétti vildu í dag skoða hversu langt hægt væri að teygja sig í sakfellingu á grundvelli peningaþvættisákvæða, þrátt fyrir að ekki liggi fyrir af hvers konar brotum Hafþór hagnaðist. 

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari.
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ákæruvaldið fer fram á dómur Landsréttar verði staðfestur og að refsing yfir Hafþóri verði þyngd. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir að ef vitað væri hver frumbrotin í málinu hefðu verið, þ.e. hvaða brot Hafþórs fólu í sér ávinning sem síðan var þvættaður, hefði verið ákært fyrir það beint.

„Ef við værum bara að sakfella fyrir fíkniefnainnflutning, sem sagt á einhverju ákveðnu tímabili sem hefði haft í för með sér ákveðinn ávinning, þá væri hægt að refsa mönnum bara fyrir brot á fíkniefnalögum,“ sagði Helgi Magnús við mbl.is að loknum málflutningi í Hæstarétti.

Helgi rakti í dag í þaula tengsl Hafþórs við þekkta leikendur í íslenskum undirheimum. Þannig taldi hann til viðskipti hans við menn eins og Stefán Blackburn og Stefán Loga Sívarsson. Með því vildi hann varpa ljósi á hvernig hann hefði vel getað orðið sér út um illa fengið fé, eins og raun bar vitni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert