Mest traust til kvenleiðtoga á Íslandi

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði að íslenskar konur munu aldei hætta …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði að íslenskar konur munu aldei hætta að berjast fyrir jafnrétti á opnunarathöfn Heimsþings kvenleiðtoga í morgun. Ljósmynd/María Kjartansdóttir

Íslendingar treysta konum best til þess að gegna leiðtogastöðum samkvæmt niðurstöðum Reykjavik Index mælingarinnar, sem kynntar voru á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu í dag.  

Mælingin byggir á könnun rannsóknarfyrirtækisins Kantar, sem mælir afstöðu almennings um allan heim til karla og kvenna sem leiðtoga. 

Viðhorf Íslendinga er nú mælt í fyrsta sinn og sá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um framkvæmd könnunarinnar hér á landi. Sama könnun er framkvæmd í öllum G-20 ríkjunum, tuttugu stærstu iðnríkjum heimsins. 

Af hundrað stigum mögulegum mældist Ísland með 92 stig þar sem hundrað stig myndu þýða að karl­ar og kon­ur þættu jafn­hæf til stjórn­un­ar­starfa á öll­um sviðum sam­fé­lags­ins.

Íslandi leiðandi í jafnrétti kynjanna

Í skýrslu Kantar segir að með þessum niðurstöðum festi Ísland sig í sessi sem leiðandi þjóð í jafnréttismálum.

Meðalstigafjöldi yfir öll G7-ríkin þetta árið er 73 og 68 á meðal G-20 ríkjanna. Rannsóknin í ár er sú viðamesta frá upphafi og varpar ljósi á rótgróna fordóma í garð kvenleiðtoga á heimsvísu. 

Mikill munur reyndist vera á milli viðhorfa íbúa G-20 landanna til trausts til kvenleiðtoga. Mest var traustið til kvenna á Spáni, 82 stig og minnst í Indónesíu, 47 stig. 

Katrín Jakobsdóttir, Willum Þór Þórsson og Guðlaugur Þór Þórðarson sátu …
Katrín Jakobsdóttir, Willum Þór Þórsson og Guðlaugur Þór Þórðarson sátu fyrir svörum í setningarathöfn heimsþingsins í morgun. Ljósmynd/María Kjartansdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert