Báðir með hjálma þegar slysið varð

Báðir ökumenn voru með hjálma þegar rafmagnshlaupa­hjól og létt bif­hjól …
Báðir ökumenn voru með hjálma þegar rafmagnshlaupa­hjól og létt bif­hjól rák­ust saman við Sæbraut á níunda tímanum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bana­slys varð norðan gatna­móta Kringlu­mýr­ar­braut­ar og Sæ­braut­ar á ní­unda tím­an­um í morg­un þegar raf­magns­hlaupa­hjól og létt bif­hjól rák­ust þar sam­an. Báðir ökumenn voru með hjálma þegar slysið varð. Þetta staðfestir Rafn Hilmar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Tilkynning um slysið barst klukkan 08:08, en myrkur og blautt var á vettvangi, að því er lögreglan greinir frá. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var það ökumaður rafmagnshlaupahjólsins sem lést en hinn slasaðist alvarlega.

Rafn segir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa nú rannsaka tildrög slyssins. Líklega er um að ræða fyrsta banaslysið sem verður hér á landi þar sem rafmagnshlaupahjól á í hlut, segir hann inntur eftir því.

„Ég man ekki eftir neinu öðru svona máli, allavega ekki á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann.

Ekki náðist í rannsóknarnefnd samgönguslysa við vinnslu fréttarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert