Banaslys í umferðinni

Banaslys varð norðan gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar á níunda tímanum í morgun þegar rafmagnshlaupahjól og létt bifhjól rákust þar saman.

Annar ökumannanna lést og hinn slasaðist alvarlega. Tilkynning um slysið barst kl. 8:08, en myrkur og blautt var á vettvangi, að því er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá.

Lögreglan og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert