Menntaverðlaunin voru veitt á Bessastöðum í kvöld

Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í kvöld.
Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í kvöld. Ljósmynd/Aðsend

Tilkynnt var um verðlaunahafa Íslensku menntaverðlaunanna 2021 í dag og fór verðlaunaafhendingin fram við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í kvöld, þar sem Guðni Th. Jóhannesson forseti veitti verðlaunin.

Fjölmargar tilnefningar bárust um verðuga verðlaunahafa í öllum þremur aðalflokkum Íslensku menntaverðlaunanna og til hvatningarverðlauna. Viðurkenningaráð valdi úr þeim og kynnti niðurstöðu sína á alþjóðlegum degi kennara 5. október síðastliðinn.

Úrslitin voru síðan gerð opinber í kvöld, og var veiting verðlaunanna sýnd beint á RÚV.

Verðlaunahafar Íslensku menntaverðlaunanna 2021 eru eftirfarandi:

Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur hlýtur leikskólinn Aðalþing fyrir framsækið, skapandi skólastarf og lýðræðislega starfshætti.

Verðlaun sem framúrskarandi kennari hlýtur Hanna Rún Eiríksdóttir, kennari við Klettaskóla, fyrir framúrskarandi kennslu nemenda með fötlun, meðal annars fyrir að þróa nýjar leiðir til tjáskipta.

Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni hlýtur Nanna Kr. Christiansen og skóla- og frístundasvið Reykjavíkur fyrir þróunarverkefnið Leiðsagnarnám. Verkefnið snýr að eflingu námsmenningar sem stuðlar að aukinni ábyrgð nemenda á eigin námi.

Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna hljóta að þessu sinni Vilhjálmur Magnússon og Vöruhúsið – miðstöð skapandi greina á Hornafirði, sem er einstakur vettvangur til kennslu í nýsköpun og list- og verkgreinum á öllum skólastigum. Þar er boðið upp á formlegt og óformlegt nám í handverki, hönnun og hugmyndavinnu þar sem lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu.

Verðlaunin vakin til lífs að nýju árið 2020

Í tilkynningu kemur fram að stofnað var til verðlaunanna árið 2005 og voru þau veitt til ársins 2011 en vakin til lífs að nýju árið 2020 með stuðningi mennta- og menningarmálaráðuneytis, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga auk embættis forseta Íslands og fjölmargra samtaka og stofnana á vettvangi skóla- og menntastarfs.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á og hefja til vegs í samfélaginu það metnaðarfulla og vandaða starf sem unnið er með börnum og ungmennum á öllum skólastigum.

Auk forseta Íslands veittu verðlaunin þau Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, og Gerður Kristný, skáld og formaður valnefndar Íslensku menntaverðlaunanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert