Mikill viðbúnaður vegna manneskju í sjónum

Tilkynning um að manneskja hefði farið í sjóinn barst rétt …
Tilkynning um að manneskja hefði farið í sjóinn barst rétt fyrir klukkan þrjú. mbl.is/Jónas Erlendsson

Mikill viðbúnaður er nú við Reynisfjöru þar sem leitað er að manneskju sem fór í sjóinn. Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út, sem og björgunarskip frá Vestmannaeyjum, þyrla Landhelgisgæslunnar og fleiri viðbragðsaðilar úr Reykjavík.

Mikill viðbúnaður er á svæðinu.
Mikill viðbúnaður er á svæðinu. mbl.is/Jónas Erlendsson

Tilkynning um að manneskja hefði líklega farið í sjóinn barst rétt fyrir klukkan þrjú í dag.

Þetta staðfesta Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, og Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is.

Samkvæmt heimildum mbl.is var um 20 manna hópur ferðamanna á svæðinu og lentu tveir einstaklingar í sjónum. Annar þeirra komst uppúr af sjálfsdáðum en hins er saknað.

Vegna erfiðra skilyrða er ekki hægt að sjósetja björgunarbáta á þessum stað og því er beðið eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert