Miklir hagsmunir fyrir Ísland

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ísland hefur mikla hagsmuni af því að góð niðurstaða náist á Glasgow-fundinum um loftslagsmál, sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra í viðtali við Al Jazeera-sjónvarpsstöðina í gær. 

Fjallað var um viðtalið á vef Stjórnarráðsins.

Hann sagði afleiðingar loftslagsbreytinga vera mjög sýnilegar á Íslandi, þar sem jöklar hörfuðu hratt. Sumar alvarlegustu breytingarnar séu þó ósýnilegar, eins og súrnun sjávar, sem sé þögul ógn við lífríki hafsins.

Ráðherra sagðist vera ívið bjartsýnni nú en við upphaf ráðstefnunnar, sem er 26. aðildarríkjaþing Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Þar komi m.a. til yfirlýsingar um árangur á ýmsum sviðum, s.s. varðandi losun metans og stöðvun skógareyðingar, auk þess sem vonandi þokist áfram varðandi niðurstöðu um fjármögnun loftslagsaðgerða í þróunarríkjum. Aðspurður sagði Guðmundur Ingi  öll ríki þurfa að taka þátt og sýna vilja í verki.

Ráðherra tók einnig þátt í viðburði um jafnréttissáttmála í orkumálum, sem er verkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna, en Ísland er eitt af fimm ríkjum sem styðja verkefnið. Viðburðinum var stýrt af Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands. Sagði Guðmundur Ingi nauðsynlegt að konur komi að borðinu við ákvarðanatöku og aðgerðir í orkumálum eins og á öðrum sviðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert