Ungir ökumenn langt yfir hámarkshraða í Eyjum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Sigurður Bogi

Tveir ungir ökumenn voru undir miðnætti teknir fyrir of hraðan akstur á Hamarsvegi í Vestmannaeyjum.

Báðir óku þeir á 95 km hraða á klukkustund þar sem hámarkshraðinn er 50 km/klst. Þeir eiga von á 80 þúsund króna sekt hvor fyrir hraðaksturinn, að sögn varðstjóra.

Hann segir mikið hafa verið um hraðakstur síðastliðinn mánuð á meðal ungra pilta í bænum sem eru nýkomnir með bílpróf. Átak hefur verið gert hjá lögreglunni til að stemma stigu við þessari stöðu.

Hraðaksturinn hefur verið víða um bæinn, á hvaða tíma sólarhringsins sem er, segir varðstjórinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert