Banaslys á Vestfjörðum

Vegfarandi kom að bifreið sem hafði oltið út af Örlygshafnarvegi, skammt frá Látravatni, um klukkan 10.13 í morgun. Ökumaður, sem var einsamall í bifreiðinni, reyndist látinn.

Frá þessu greinir lögreglan á Vestfjörðum í tilkynningu. Segir í henni að svo virðist sem bifreiðin hafi runnið út af veginum og oltið að minnsta kosti eina veltu þar til hún nam staðar.

Lögregla, sjúkra- og slökkviliðsmenn frá Patreksfirði fóru á vettvang. Beita þurfti klippum og öðrum búnaði til að losa ökumann úr bílflakinu.

Rannsóknarnefnd skoðar vettvang

Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörðum en rannsóknarnefnd samgönguslysa skoðar einnig vettvang.

Fjölskyldu hins látna hefur verið tilkynnt um slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert