Fagnar hverjum gesti hallarinnar

Bólusetningar dagsins gengu ljómandi vel að sögn Ragnheiðar, fólk var …
Bólusetningar dagsins gengu ljómandi vel að sögn Ragnheiðar, fólk var samvinnuþýtt og jákvætt. Eggert Jóhannesson

6.620 manns mættu í bólusetningu í Laugardalshöllinni í dag, en það eru 68 prósent af þeim sem boðaðir voru. 

Það hefði mátt vera betri þátttaka að mati Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, fram­kvæmda­stjóra hjúkr­un­ar hjá heilsu­gæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins.

Hún hafði fyrr í dag tjáð mbl.is að búist væri við 80 prósent mætingu en kveðst þó ánægð með hvern og einn einasta sem mætir.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Eggert Jóhannesson

Betra nú en áður

Spurð hvort hún finni fyrir minni stemningu meðal fólks fyrir bólusetningu en áður, segir hún að því sé öfugt farið. 

„Ég held að þetta sé betra, þegar við vorum á Suðurlandsbrautinni voru ekki að mæta nema 30 til 40 prósent á hverjum boðuðum degi.“

Vel smurt ferli

Bólusetningar dagsins gengu ljómandi vel að sögn Ragnheiðar, það var góður hljómur í fólki og engin neikvæðni. 

Ragnheiður kveðst ekki geta sagst hafa saknað þess að halda úti fjöldabólusetningar í Laugardalshöllinni, en það sé þó munur frá því í upphafi enda gangi ferlið smurt fyrir sig. 

„Við erum öll farin að kunna þetta nokkuð vel, bæði að mæta í bólusetningu og framkvæma hana.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert