206 innanlandssmit – enn eitt metið

Fólk í röð í sýnatöku.
Fólk í röð í sýnatöku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

206 greind­ust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær, þar af voru 95 í sótt­kví við grein­ingu. Þetta kem­ur fram á covid.is þar sem fram kemur að alls hafi 215 smit greinst í gær, þar af níu á landamærunum.

Er það metfjöldi smita sem hefur greinst á einum degi innanlands en áður höfðu mest greinst 200 innanlandssmit á einum degi, á miðvikudaginn í síðustu viku.

Níu greind­ust á landa­mær­um og þar af bíður einn mót­efna­mæl­ing­ar.

25 eru á sjúkra­húsi, þar af fjórir á gjör­gæslu.

Tek­in voru 4.422 sýni, þar af 2.124 ein­kenna­sýni. 1.773 eru nú í ein­angr­un vegna Covid-19 og 2.636 í sótt­kví.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert