Aukafundur í trúnaðarráði Eflingar á föstudag

Heimildir herma að Sólveigu og Viðari verði boðið á fundinn.
Heimildir herma að Sólveigu og Viðari verði boðið á fundinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aukafundur fer fram í trúnaðarráði Eflingar á föstudaginn, þann 19. nóvember. Þetta kemur fram á heimasíðu Eflingar, en fundurinn mun fara fram á Zoom. Trúnaðarráðið fundaði síðast í liðinni viku, en ráðið fundar venjulega einu sinni í mánuði.

Samkvæmt heimildum mbl.is verður Sólveigu Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formanni Eflingar, og Viðari Þorsteinssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra, boðið að koma á fundinn.

Sólveig mun ítrekað hafa óskað eftir því að fá að koma á fundinn í síðustu, en þegar henni var loksins svarað hætti hún við. Heimildirnar herma að í staðinn hafi verið ákveðið að bjóða bæði Sólveigu og Viðari að koma á aukafund trúnaðarráðsins og verða þau því væntanlega boðuð á fundinn á föstudaginn.

Samkvæmt sömu heimildum var ákveðið að ræða ekki sérstaklega um Sólveigu og Viðar í tengslum við átökin innan Eflingar á síðasta fundi, þar sem þau voru ekki viðstödd.

Samþykktu ályktun um Sólveigu

Mikil ólga var innan félagsins vegna óánægju starfsfólks á skrifstofu með framkomu Sólveigar. Sam­kvæmt álykt­un sem trúnaðar­menn Efl­ing­ar af­hentu stjórn­end­um í júní síðastliðnum hafði starfs­fólkið upp­lifað van­líðan og óör­yggi á vinnustaðnum. Var Sól­veig meðal ann­ars sökuð um að halda „af­tök­ulista“ og að fremja al­var­leg kjara­samn­ings­brot á borð fyr­ir fyr­ir­vara­laus­ar upp­sagn­ir. Á starfs­manna­fundi í lok októ­ber vildi eng­inn bera þær ásakn­ir til baka og ákvað Sól­veig í kjöl­farið að segja af sér sem formaður.

Sólveig hefur sakað starfsfólkið um að hafa hrakið sig úr for­manns­stóln­um og hafa aldrei gefið sér vinnufrið eða haft skilning á baráttunni. 

Á fundi trúnaðarráðsins í síðustu viku var samþykkt ályktun um Sólveigu þar sem henni var þakkað fyrir linnulausa baráttu sína fyrir hagsmunum Eflingarfélaga. Fram kom að Sólveig hefði staðið við fyrirheit um breytingar í Eflingu og að þjónusta félagsins hefði tekið miklum framförum í hennar stjórnartíð. Mikilvægust væri þó umbreyting félagsins yfir í baráttusamtök. Sólveig hefði sýnt að Efling gæti náð raunverulegum árangri í baráttu verka- og láglaunafólks. Ályktuninni lauk á þeim orðum að trúnaðarráðið harmaði brotthvarf hennar.

Í trúnaðarráði Eflingar sitja um 130 manns, þar á meðal stjórn félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert