126 smit greindust innanlands

AFP

126 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær, þar af 59 utan sóttkvíar. 20 eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af fjórir á gjörgæslu.  

1.786 manns eru í einangrun og 2.289 í sóttkví. Þá eru 257 í skimunarsóttkví.

Fjögur virk smit greindust við landamærin í gær og tvö smit sem ekki er vitað hvort séu virk. Í þeim tilvikum er mótefnamælingar beðið.

Hátt í 4.000 sýni voru tekin í gær og var hlutfall jákvæðra einkennasýna 4,64%. Hlutfall jákvæðra sýna úr sóttkvíar- og handahófsskimun var 3,37% en hlutfallið var 0,81% í landamæraskimun.

14 daga nýgengi á hverja 100.000 íbúa mælist nú í 562 innanlands en 29,2 við landamærin. 

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert