Ísland orðið dökkrautt í fyrsta sinn

Kort sóttvarnastofnunar Evrópu.
Kort sóttvarnastofnunar Evrópu.

Ísland er orðið dökkrautt á korti Sótt­varna­stofn­un­ar Evr­ópu um þróun heimsfaraldurs Covid-19 í álfunni, sem uppfært var rétt í þessu. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland er á þessu hæsta hættustigi stofnunarinnar.

Stuðst er við sam­ræmd­an litakóða þar sem lönd eru flokkuð í mis­mun­andi hættu­flokka eft­ir ný­gengi smita og hlut­falli já­kvæðra sýna. Ísland var fyrir daginn í dag rauðmerkt. 

Dökkrauð merking þýðir að fjórtán daga nýgengi smita á hverja 100 þúsund íbúa sé yfir fimm hundruð.

Ný­gengi inn­an­lands­smita er nú 562,3 sam­kvæmt covid.is, upplýsingavef almannavarna um faraldurinn.

Litakóðun­ar­kerfið hef­ur þann til­gang að veita upp­lýs­ing­ar um stöðu heims­far­ald­urs­ins í hverju landi fyr­ir sig svo hægt sé að bera þau sam­an og átta sig á aðstæðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert