19 á Landspítala með Covid-19

Frá Landspítalanum.
Frá Landspítalanum. Ljósmynd/Landspítalinn

19 sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19. Af þeim eru 14 í einangrun, 11 á smitsjúkdómadeild og þrír á gjörgæslu, þar af tveir í öndunarvél.

Í eftirliti göngudeildar eru 1.759, þar af 559 börn. 88 eru gulir og enginn á rauðu, að því er segir í tilkynningu.

Í gær komu níu einstaklingar til mats og meðferðar á göngudeild en enginn þurfti innlögn.

Alls eru 53 starfsmenn fjarverandi vegna sóttkvíar (27) og einangrunar (24) og 124 eru í vinnusóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert