Funda með landlækni vegna lögreglurannsóknar

Landspítalinn.
Landspítalinn. mbl.is/Unnur Karen

Stjórnendur Landspítalans munu funda með landlækni í dag um nýjustu upplýsingar sem hafa komið fram vegna lögreglurannsóknar á andláti sex einstaklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Eftir það verður staðan metin, að sögn Andra Ólafssonar, samskiptastjóra Landspítala.

Hann bætir við að upplýsingarnar sem komu fram í gær hafi verið nýjar fyrir stjórnendur spítalans.

Fram kom í gær að lögreglan rannsaki einnig meðferð fimm annarra sjúk­linga sem rök­studd­ur grun­ur er um að hafi verið skráðir í lífs­lokameðferð að til­efn­is­lausu og með því hafi ör­yggi þeirra verið ógnað.

Í samtali við RÚV í gær sagðist Alma Möller landlæknir ekki getað tjáð sig um einstaka mál en að óskað verði eftir frekari upplýsingum frá lögreglu í ljósi frétta dagsins.

Læknirinn sem tengist málinu hætti hjá HSS eftir að rannsókn hófst en síðan þá hefur hann starfað hjá Landspítalanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert