Áfall að veiran hafi greinst

„Auðvitað er þetta áfall að þessi veira greinist hjá okkur, …
„Auðvitað er þetta áfall að þessi veira greinist hjá okkur, bæði fyrir okkur og starfsfólkið,“ segir Jens í samtali við mbl.is. mbl.is/Þorgeir Baldursson

„Auðvitað er þetta áfall að þessi veira greinist hjá okkur, bæði fyrir okkur og starfsfólkið,“ segir Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis, í samtali við mbl.is.

Jens segir að vinnan við það að taka fiskinn úr kvínni þar sem grunur liggur um að ISA-veirusýking hafi komið upp verði vonandi kláruð seinni partinn á morgun.

Búið er að virkja sóttvarnaferla sem felast í því að kvíin hefur verið einangruð og stöðin undir sérstöku eftirliti hjá Matvælastofnun.

„Við vinnum þetta allt í samráði og samkvæmt fyrirmælum frá MAST þannig að þetta er fyrsta skrefið og við erum að klára það núna.“

Hann bendir þó á að síðast kom veiran upp í Færeyjum árið 2016/2017 og þar hafi sýkingin verið staðbundinn við tvær kvíar.

Brunnbáturinn verið í notkun í þrjú ár

Landssamband Veiðifélaga sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem þeir gagnrýna notkun erlendra brunnbáta hérlendis, Jens segir að brunnbáturinn sem fyrirtækið notast við hafi verið í notkun í þrjú ár og hafi farið í gegnum staðlaða sótthreinsun.

„Þegar brunnbátar koma til landsins þá eru þeir sótthreinsaðir og teknir út af yfirvöldum. Ég vísa þessu frekar til MAST og dýralækna að svara þessum fullyrðingum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert