Vara fólk við ferðum um Grímsvötn

Síðast gaus í Grímsvötnum árið 2011.
Síðast gaus í Grímsvötnum árið 2011. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Lögreglan á Suðurlandi varar fólk við þeim hættum sem eru af ferðum um vatnasvið Grímsvatna. Annars vegar vegna sigs íshellunnar og jökulsprungna og hins vegar vegna afleiðinga eldgoss, sem ekki er hægt að útiloka að fylgi í kjölfar hlaups.

Ís­hell­an hefur sigið um tugi sentí­metra á tveim­ur sól­ar­hring­um, at­b­urður sem sögu­lega hef­ur verið und­an­fari goss.

„Sig íshellunnar í Grímsvötnum getur náð 100 metrum sem veldur því að hættulegar jökulsprungur geta myndast á ferðaleiðum.  Auk þess geta myndast sprungur yfir hlaupfarveginum sem liggur austan við Grímsfjall og niður Skeiðarárjökul.  Þegar hlaupið kemur undan Skeiðarárjökli getur gas losnað úr hlaupvatninu sem fer yfir heilsuverndarmörk,” segir í tilkynningunni.

„Dæmi hafa einnig sýnt að í lok jökulhlaupa í Grímsvötnum geti hafist eldgos með tilheyrandi öskufalli.  Mjög hættulegt getur verið að vera á jöklinum ef eldgos hefst og í samráði við Jöklarannsóknarfélagið verður skálum á Grímsfjalli lokað á meðan ástandið varir.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert