95 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af voru 53 í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is þar sem enn fremur kemur fram að alls hafi 112 smit greinst í gær, þar af 17 smit á landamærunum.
19 eru á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu.
Tekin voru 3.120 sýni, þar af 867 einkennasýni. 1.592 eru nú í einangrun vegna Covid-19 og 1.939 í sóttkví.