Miklar umferðartafir vegna áreksturs á Hafnarfjarðarvegi

Lögreglan hvetur fólk til þess að fara ekki út í …
Lögreglan hvetur fólk til þess að fara ekki út í umferðina nema á vel búnum bílum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Árekstur tveggja bifreiða varð á Hafnarfjarðarvegi fyrir skömmu. Miklar umferðartafir eru á veginum og er megninu af akstursleiðinni lokað.

Að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var um aftanákeyrslu að ræða og urðu minniháttar slys á fólki.

Samkvæmt umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa orðið nokkrir árekstrar í dag vegna lélegra akstursskilyrða en engir þeirra alvarlegir.

Lögreglan hvetur fólk til þess að fara ekki út í umferðina nema á vel búnum bílum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert