Ómíkrón berist til landsins

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sóttvarnalæknir telur að það geti orðið mjög erfitt að koma í veg fyrir að Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar berist hingað til lands. Óvissa ríkir um hversu smitandi afbrigðið er en fyrsta smitið greindist í Suður-Afríku og virðist útbreiðslan mest í sunnanverðri álfunni þó það hafi borist víðar.

„Þetta er meira að segja komið inn í Ástralíu sem er með mjög strangar reglur, miklu strangari reglur en við,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is.

Hann segir allar sóttvarnaaðgerðir miða að því að tefja og hemja útbreiðslu kórónuveirunnar. „Við getum aldrei vænst þess að þessar aðgerðir komi algjörlega í veg fyrir að þessi veira eða aðrar dreifi sér. Við erum að reyna að hafa hemil á henni.“

Veiran virðist smjúga framhjá ströngu eftirliti á flugvöllum.
Veiran virðist smjúga framhjá ströngu eftirliti á flugvöllum. AFP

Mörg lönd hafa gripið til hert­ari aðgerða við landa­mær­in í von um að hefta út­breiðslu af­brigðis­ins, þar á meðal Ísland. Nú verða all­ir ferðalang­ar sem dvalið hafa á háá­hættu­svæðum síðastliðnar tvær vik­ur gert að fara í PCR-próf við kom­una til lands­ins og sæta fimm daga sótt­kví, sem mun ljúka með öðru PCR-prófi.

Vona það besta, búast við því versta

Þórólfur segir að nú þurfi að bíða aðeins og fá frekari fregnir af rannsóknum á afbrigðinum áður en ákveðið verði að ráðast í einhverjar frekari ráðstafanir. Hann bendir enn fremur á að aðgerðir á landamærunum hér séu býsna strangar.

„Þrátt fyrir það vitum við að við erum að fá veiru framhjá þessu kerfi og inn í landið.“

Suður-Afrískur læknir, einn þeirra sem uppgötvaði nýja afbrigðið, sagði um helgina að einkenni smitaðra af því væru mild. Þórólfur sagði að við ættum auðvitað að vona að sú yrði raunin en á sama tíma vera viðbúin verri fregnum:

„Við vitum að það hefur verið aukning á spítalainnlögnum vegna Covid í Suður-Afríku. Við vitum ekki hvaða afbrigði af veirunni um er að ræða þar en við eigum eftir að fá betri fregnir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert