Íshellan sigið um sjö metra

Frá Grímsvötnum.
Frá Grímsvötnum. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Sig íshellunnar í Grímsvötnum heldur áfram, hægt og rólega, og er nú orðið sjö metrar frá því að Veðurstofa Íslands fór að fylgjast með stöðu mála. Íshellan sígur allt að hundrað metra í eðlilegu jökulhlaupi. 

Bjarki Kaldalón Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að nú mælist örlítil hækkun í rafleiðni við Gígjukvísl, en aukning í vatnshæð sé ekki mikil.

Ekki sé að sjá miklar breytingar á myndavélum né gas við Skeiðarárjökul. Hlaupórói mældist í Grímsvatnastöð í gærkvöldi sem orsakast af vatni sem flæðir undir jökulinn.  

Í morgunsárið mældist einnig hlaupórói í annarri mælistöð nær Skeiðarárjökli. „Það sést ekki eins vel á mælum eins og í Grímsvatnastöð,“ útskýrir Bjarki.

Lík­ur hafa verið tald­ar á gosi úr eld­stöðinni í kjöl­far hlaups. Enn hafa eng­in merki sést um slíkt og skjálftavirkni hefur ekki mælst á svæðinu, sem búast mætti við ef til goss kæmi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert