Þrír í öndunarvél

Síðastliðinn sólarhring komu átta manns til mats og meðferðar á …
Síðastliðinn sólarhring komu átta manns til mats og meðferðar á göngudeild og var einn lagður inn.

19 sjúk­ling­ar liggja á Land­spít­ala vegna Covid-19. Af þeim eru 14 með virkt smit, 10 á smit­sjúk­dóma­deild og þrír á gjör­gæslu í öndunarvél.

Síðastliðinn sólarhring komu átta manns til mats og meðferðar á göngudeild og var einn lagður inn, að því er fram kemur á vef spítalans.

Í eft­ir­liti göngu­deild­ar eru 1.546, þar af 492 börn.

48 starfsmenn eru fjarverandi vegna einangrunar og sóttkvíar (23/25) og 220 eru í vinnusóttkví.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert