Kona fannst eftir umfangsmikla leit

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi

Laust eftir klukkan tvö í nótt fékk lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um að kona á áttræðisaldri hefði farið að heiman frá sér á Akureyri, líklega um miðnætti, og ekki skilað sér heim aftur. 

Fram kom að konan væri alzheimer-sjúklingur og væri því ekki líkleg til að rata heim aftur.

Lögreglan hóf strax leit að konunni, auk þess sem björgunarsveitir í Eyjafirði og Þingey voru ræstar út til aðstoðar og leitar. Aðgerðastjórn var einnig virkjuð og var leitað með skipulögðum hætti út frá heimili konunnar með fjölda björgunarsveitarmanna, lögreglumanna, drónum og leitarhundi.

mbl.is/Eggert

Fylgdu sporum í snjónum 

„Þó að kalt hafi verið í veðri þá voru aðstæður til leitar ákjósanlegar og gátu leitarmenn m.a. fylgt líklegum sporum í snjónum frá heimili viðkomandi. Þrátt fyrir að hafa misst af þeim á nokkrum stöðum var það til þess að konan fannst heil á húfi laust fyrir kl. 07:00, þá enn á gangi og búin að ganga rúmlega 3 kílómetra frá heimili sínu,“ segir í facebookfærslu lögreglunnar.

Konan var í framhaldinu flutt á sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert