Lögmæti þjóðþingsins á úreltum leikreglum konungs

Stefnuræða forsætisráðherra var flutt í kvöld.
Stefnuræða forsætisráðherra var flutt í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta þing situr ekki aðeins í skugga lögbrota og óstaðfestra talninga, heldur jafnframt í skugga þeirra sterku ítaka sem löngu látinn Danakonungur hefur ennþá á íslenska stjórnskipan,“ sagði Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, í ræðu sinni á Alþingi í kvöld.

Hún sagði það úrelt að ákvæði um að alþingismenn skuli vera dómarar í eigin máli og ákveða hvort þeir séu rétt kjörnir. 

Arndís Anna K. Gunnarsdóttir er önnur af tveimur nýjum þingkonum …
Arndís Anna K. Gunnarsdóttir er önnur af tveimur nýjum þingkonum Pírata.

„Það er því mótsagnakennt að minnast fullveldisins, á sama tíma og lögmæti þjóðþingsins sjálfs hvílir ennþá á löngu úreltum leikreglum Danakonungs.“

Þá sagði Arndís stjórnarsáttmálann og fjárlagafrumvarpið einnig vera mótsagnakennt. Hún sagði það mikilvægt að segja skilið við afturhaldið. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert