Máli Jóns Baldvins áfrýjað

Jón Baldvin ásamt lögmanni sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni.
Jón Baldvin ásamt lögmanni sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni. mbl.is/Árni Sæberg

Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja máli Carmenar Jóhannsdóttur gegn Jóni Baldvini Hannibalssyni fyrrverandi utanríkisráðherra til Landsréttar.

Frá þessu er greint í Fréttablaðinu.

Jón Baldvin var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í mánuðinum af ákæru þar sem hann var sakaður um að hafa brotið kynferðislega á Carmen Jóhannsdóttur sumarið 2018 þar sem hún var gestkomandi á heimili hans á Spáni ásamt fjölskyldu sinni. 

Óvanalegt að sýkna þegar sjónarvottur er til staðar

Dröfn Kærnested, sækj­andi í máli Car­men­ar, hafði farið fram á að honum yrði gert að sæta fang­elsi í tvo til þrjá mánuði skil­orðsbundið. Þá fór skipaður réttargæslumaður Carmenar fram á að hann yrði dæmdur til að greiða miska­bæt­ur upp á eina millj­ón króna, auk vaxta.

Héraðsdómur féllst ekki á þær kröfur og var Jón Baldvin sýknaður. 

Dröfn Kærnested sagði þá í samtali við mbl.is að líklegt væri að áfrýjun yrði skoðuð vel. Dómurinn væri mikil vonbrigði enda óvanalegt að sýknað væri í kynferðisbrotamálum þegar sjónarvottur er til staðar. Hefði ákæruvaldið staðið í þeirri trú að það væri með sterkt mál í höndunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert