Þrír á gjörgæslu

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Árni Sæberg

Tuttugu og tveir sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19 er kemur fram á heimasíðu Landspítalans. Þrír þeirr eru á gjörgæslu, þar af tveir í öndunarvél.  

Meðalaldur þeirra sem liggja inni á spítalanum vegna þessa er 63 ár.  

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 204 innlagnir á Landspítalann vegna Covid-19. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert