Fjárlög rædd í hálfan sólarhring

Umræðum var frestað.
Umræðum var frestað. mbl.is/Árni Sæberg

Alþingi hóf fyrstu umræður um fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra fyrir árið 2022 klukkan hálftólf að hádegi og lauk þingfundi þegar klukkuna vantaði eina mínútu í ellefu að kvöldi. 

Umræðum var frestað og mun þeim því haldið áfram klukkan hálf ellefu í fyrramálið.

Tómas A. Tómasson þingmaður, Flokks fólksins, dottaði á þingsetningunni þann …
Tómas A. Tómasson þingmaður, Flokks fólksins, dottaði á þingsetningunni þann 25. nóvember, sem var þó aðeins styttri eða um níu klukkustundir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sagði sig úr hlutverki varaforseta

Þingfundur dagsins hófst þó klukkan hálf ellefu, með umræðum um fundarstjórn og kosningu nýs 3. varaforseta, í stað Ingu Sæland sem sagði sig úr því hlutverki. Þá voru einnig kosnir ellefu þingmenn úr öllum þingflokkum í framtíðarnefnd og fulltrúi, ásamt varamanni, kosinn í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. 

Tvö stutt hlé voru gerð en, sé litið framhjá þeim, stóð þingfundur yfir í tólf og hálfa klukkustund. Þar af fóru umræður um fjárlagafrumvarpið fram í ellefu og hálfa klukkustund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert