Skotið á tvö hús í Kópavogi

Talið er að loftbyssa hafi verið notuð við verknaðinn.
Talið er að loftbyssa hafi verið notuð við verknaðinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nú með til rannsóknar tvö tilvik þar sem skotið var á þrjár rúður í tveimur íbúðum í fjölbýlishúsum í Kórahverfinu í Kópavogi að næturlagi fyrr í vikunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Á öðrum staðnum fór kúla í gegnum rúðuna og hafnaði í borðstofuborði. Húsráðendum var eðlilega mjög brugðið vegna þessa, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Talið er að loftbyssa hafi verið notuð við verknaðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert